# Minna > Minna er íslenskt vefforrit sem hjálpar fólki að skipuleggja matarinnkaup, búa til vikumatseðla, minnka matarsóun og finna notaðar vörur á markaðstorgi — fyrir þig og umhverfið. Minna (https://minna.is) er íslenskt vefforrit sem hjálpar heimilum að skipuleggja vikulega matseðla, búa til innkaupalista, minnka matarsóun og finna notaðar vörur í stað þess að kaupa nýtt. Vefurinn er á íslensku og einbeitir sér að íslenskum markaði (Krónan-tenging, íslenskar verslanir). Þessi skrá inniheldur lykilefni síðunnar í texta, því aðalefnið er rendrað með JavaScript (React/Vite SPA) og AI-agentar sem ekki keyra JS sjá það annars ekki. ## Forsíða (https://minna.is/) Titill: Minna — vikumatseðill, innkaupalisti & markaðstorg Lýsing: Minna hjálpar þér að skipuleggja vikumatseðla, búa til innkaupalista og finna notaðar vörur á markaðstorgi — fyrir þig og umhverfið. ### Neysla á Íslandi (tölur sem birtast á forsíðunni) - Fjögurra manna fjölskylda hendir mat af andvirði 812.463 kr. árlega. Það eru 236 vinnustundir sem enda í ruslinu, eða 4,2 vikur. - Fjögurra manna fjölskylda losar sig við textíl af andvirði 1.237.320 kr. árlega. Það tæki 360 vinnustundir eða 6,4 vikur að vinna inn fyrir þeirri upphæð. - 7 tonn berast til Góða Hirðisins frá endurvinnslustöðvunum á dag (heimild: Ársskýrsla Sorpu 2024). - Losun gróðurhúsalofttegunda á Íslandi jókst milli ára (heimild: Umhverfis- og orkustofnun). ### Hvað getum við gert? Ein áhrifaríkasta leiðin til að bæta þessar tölur er að draga úr neyslu. Kaupum minna, nýtum betur — fyrir þig og umhverfið. Velkomin á Minnu, þín aðstoð til að velja betur og spara pening í leiðinni. ### Sparaðu með hjálp Minnu Með hjálp Minnu getur þú skipulagt matarinnkaupin og búið til matseðla með einföldum hætti, til að koma í veg fyrir tíðar búðarferðir. Minna tekur mið af árstíðarbundnum vörum og passar að nýta þau hráefni sem þú átt nú þegar, og þau sem þú kaupir. Losnaðu við "hvað eigum við að borða?" hausverkinn, minnkaðu matarsóun og sparaðu pening í leiðinni. Þú getur bætt innkaupalistanum beint í körfu hjá Krónunni og fengið vörurnar sendar heim. Markaðstorg Minnu aðstoðar þig að finna notaðar vörur sem mæta þínum þörfum. Ertu á leiðinni í barnaafmæli? Kíktu á markaðstorgið til að sjá hvort þú getir ekki fundið fyrirtæki sem selja notuð leikföng, bækur eða föt. Hættum að kaupa nýja hluti — það sem okkur vantar er nú þegar til. Slagorð: Gríptu í Minnu áður en þú grípur í veskið — fyrir þig og umhverfið. ## Markaðstorg (https://minna.is/markadstorg) Titill: Markaðstorg Minnu — notaðar vörur frá íslenskum verslunum Lýsing: Finndu fatnað, barnavörur, heimilisvörur, raftæki og gjafir frá íslenskum verslunum sem selja notað. Það sem okkur vantar er nú þegar til. Nýtum það sem við eigum eða kaupum notað. Finndu umhverfisvænni kosti sem mæta þínum þörfum. Flokkar á markaðstorginu: - Fatnaður & skór — https://minna.is/fatnadur - Barnavörur — https://minna.is/barnavorur - Heimilisvörur — https://minna.is/heimilisvorur - Raftæki — https://minna.is/raftaeki - Gjafahugmyndir — https://minna.is/gjafahugmyndir Markaðstorgið inniheldur bæði vefverslanir og fastar búðir á Íslandi. Búðir eru einnig sýndar á korti. Á fyrirtækið þitt heima hér? Sendu okkur línu á info@minna.is. ## Um Minnu (https://minna.is/um-minnu) ### Markmið Minnu Mörg okkar erum meðvituð um að við erum að kaupa of mikið og henda of miklu, en það er oft erfitt að vita hvar maður eigi að byrja þegar kemur að því að breyta venjum sínum. Við vildum þróa tól sem aðstoðar neytendur að taka fyrstu skrefin í áttina að minni neyslu. Með því að skipuleggja matarinnkaup og versla aðeins (eða mestmegnis) notaðar vörur, tökum við risastór skref í áttina að því að minnka neyslu og sóun. Minni neysla þýðir líka fjárhagslegur sparnaður — þannig með því að nýta Minnu til að kaupa minna hagnast einstaklingar af því persónulega, og umhverfið í leiðinni. Þessvegna segjum við að Minna sé fyrir þig og umhverfið. ### Upphaf Minnu Minna var stofnuð af Marín Jónsdóttur (marin@minna.is). Hugmyndin kviknaði þegar stofnandi áttaði sig á því hversu mikið hún var að eyða í nýja hluti sem hana vantaði sjaldnast, samhliða upplýsingum frá Sorpu um magn textíls og hluta sem berast endurvinnslustöðvum á Íslandi á hverjum degi. Markmiðið er að gefa íbúum á Íslandi raunverulega mynd af stöðunni með íslenskum tölum, og þróa tól sem gerir það auðveldara að taka skref í áttina að minni neyslu: einfaldari og skipulagðari búðarferðir, og betri yfirsýn yfir verslanir sem selja notaðar vörur. ## Lykilsíður (full slóðaskrá) - Forsíða: https://minna.is/ - Matseðill (AI-vikumatseðill): https://minna.is/matsedill - Innkaupalisti (með Krónan-tengingu): https://minna.is/innkaupalisti - Markaðstorg: https://minna.is/markadstorg - Fatnaður & skór: https://minna.is/fatnadur - Barnavörur: https://minna.is/barnavorur - Heimilisvörur: https://minna.is/heimilisvorur - Gjafahugmyndir: https://minna.is/gjafahugmyndir - Raftæki: https://minna.is/raftaeki - Mælaborð (persónulegt): https://minna.is/maelabord - Um Minnu: https://minna.is/um-minnu - Hvernig aðrir nota Minnu: https://minna.is/hvernig-adrir-nota-minnu - Leiðbeiningar: https://minna.is/leidbeiningar ## Tenging - Tölvupóstur: info@minna.is - Stofnandi: marin@minna.is - Staðsetning: Reykjavík, Ísland